Skip to Content

Groovís

Sætasta byltingin

Lítil búð, STÓR karakter

Fullkomin bragðupplifun

Groovís er meira en bara ísbúð – þetta er sykurknúin gleðisprengja. Skærir litir, leikandi hönnun og yfirgengilegar kræsingar leggja grunn fyrir mjúkan ís, mini-kleinuhringi, sjeika og frábært úrval af kurli. Þetta er staður sem lætur þér líða eins og barni aftur – staður þar sem þú vilt taka mynd áður en þú tekur fyrsta bitann. Bragð alltaf í forgrunni.

Krakkar elska kandífloss ísinn og skemmtilegar samsetningar. Fullorðnir elska bragðarefina, silki mjúkan ís úr vél og ný djúpsteikta mini-kleinuhringi sem eru steiktir fyrir hverja pöntun.


Heimur sætra gleðistunda

Groovís býður upp á ís, mini-kleinuhringi og sykurpúða – auk skemmtilegra combo-lausna þar sem allt þetta kemur saman á óvæntan og girnilegan hátt. Við sérhæfum okkur í íslenskum mjúkís í fjölbreyttum bragðtegundum og klassísku sælgæti sem vekur upp bæði nostalgíu og gleði.

Þú finnur okkur í hjarta Selfoss, rétt við aðal hringtorgið – ómögulegt að keyra framhjá án þess að taka eftir okkur.

Horfðu á þegar við töfrum fram kræsingarnar ferskar fyrir framan þig – í litríkum, lifandi aðstæðum sem gera heimsóknina einstaka.









Taktu þér góðan tíma!

Sjálfsafgreiðsla er í forgrunni hjá Groovís – engin biðröð, ekkert stress.

Við erum með nóg af sjálfsafgreiðslu-skjám og ef mikið er að gera geturðu einfaldlega pantað í gegnum QR-kóða. Þegar pöntunin þín er að verða tilbúin færðu SMS og getur þá sótt hana í afgreiðslu þegar þú færð SMS.

Engar hefðbundnar raðir eins og í venjulegri ísbúð. Hjá okkur er passív bið – þú pantar í rólegheitum, hannar þinn ís eins og þú vilt og nýtur augnabliksins.

Þú getur jafnvel pantað úti í sólskininu, sest niður og látið krakkana sækja ísinn þegar þú færð SMS.

Fullorðnir elska góðan mjúkís og ilmandi volga kleinuhringi sem eru steiktir fyrir hverja pöntun.

Börn elska kandífloss vafna "Groovísinn" okkar, og skemmtilegan úrval af kurli.

Gjafakort!

Gjafakort Groovís eru fullkomin afmælisgjöf – leyfa börnum að velja sínar uppáhalds kræsingar og njóta augnabliks hreinnar gleði. Pantaðu á netinu og fáðu sent í tölvupósti eða sóttu í verslun.

Panta núna

Kleinuhringjabakki fyrir veislur

Bakkinn inniheldur 60 mini-kleinuhringi og er fullkominn á veislu borð t.d. í fermingar, barnaafmæli, í sumarbústaðinn, eða bara hvar sem er. Algjör sigurvegari.

Panta núna 

Sækja, senda eða fá heimsent

Pantaðu á netinu, veldu afhendingartíma, sæktu sjálf/ur eða fáðu sent með Wolt – einfalt, hratt og ljúffengt.

Panta núna 
+

Groovís vagninn

Veisla á hjólum: krap og kandífloss vagn fyrir afmæli, fermingar, útskriftir, fyrirtækja viðburði og brúðkaup. Afhent og sett upp af okkur, innifalið er hátalari, sápukúluvél og sólhlíf en einnig er hægt að fá starfsmann með.

Veisluþjónusta 

Hópafsláttur

Hópar með 20+ gesti geta keypt afsláttarmiða í Groovís. Þú velur vöruna – því stærri hópur, því betra verð.

Við þjónustum reglulega hópa allt að 120 manns hratt og örugglega. Vinsæl uppsetning fyrir börn er miðlungs ís með kandífloss og ís með fjórum mini-kleinuhringjum fyrir fullorðna.

Frábær kostur fyrir íþróttalið, gæsanir og steggjanir, leikskóla, skóla, fyrirtæki og hópastarf.

Hafðu samband